Commander
Hver spilari kemur með sinn eigin stokk og þrír til fjórir spila saman við borð. Afslappað og félagslegt, og besta leiðin til að kynnast hópnum.
Magic: The Gathering á Ísafirði. Frítt inn, opið öllum og byrjendur jafnt sem reynsluboltar eru velkomnir við borðið.
Næstu spilakvöld Við spilum CommanderKomdu og spilaðu. Lærðu eitthvað nýtt.
Um félagið
Spilafélag Vestfjarða er félag fyrir fólk á Vestfjörðum sem hefur gaman af spilum. Markmiðið er einfalt: að skapa stað þar sem fólk hittist, kynnist og spilar saman.
Félagið var stofnað 12. september 2026 í kringum Commander-kvöldin í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Í dag snýst starfið að mestu um Magic: The Gathering, en félagið er opið fyrir alls konar spilum, hvort sem það eru borðspil, Pokémon, hlutverkaspil eða annað sem félagarnir vilja spila.
Félagið er rekið í sjálfboðavinnu og ekki í hagnaðarskyni.
Kosin á stofnfundi. Náðu í okkur á spilafelagvestfjarda@gmail.com.
Hvort sem þú átt hundrað stokka eða hefur aldrei spilað, þá finnum við þér sæti við borðið.
Næstu viðburðir
Næstu dagsetningar eru auglýstar á Facebook.
Ertu að mæta í fyrsta sinn?
Hver spilari kemur með sinn eigin stokk og þrír til fjórir spila saman við borð. Afslappað og félagslegt, og besta leiðin til að kynnast hópnum.
Allir fá nýja, óopnaða pakka og byggja stokk úr þeim, svo enginn þarf að eiga safn fyrir fram. Prerelease er haldið þegar nýtt sett kemur út.
Öll spilakvöld og mót eru auglýst á Facebook-síðu félagsins og í Facebook-hópnum MTG Vestfirðir.
Við leitum að fólki sem vill taka að sér önnur spil en Magic: skipuleggja kvöldin, kenna nýjum og byggja upp hóp, hvort sem það eru borðspil, Pokémon, D&D eða eitthvað allt annað. Félagið hjálpar þér af stað, til dæmis með að finna stað og auglýsa.
Viðburðirnir eru öllum opnir, hvort sem þú ert félagi eða ekki. Með aðild styður þú starfið og færð atkvæðisrétt á aðalfundi.
Fylltu út stutt eyðublað. Það tekur um eina mínútu.
Krafa birtist í heimabankanum þínum. Þú telst félagi þegar hún hefur verið greidd.
Finndu næsta spilakvöld og taktu vin með.
Haldinn eigi síðar en 30. apríl ár hvert og boðaður með minnst tveggja vikna fyrirvara, með tölvupósti til félaga og á vef eða samfélagsmiðlum félagsins. Þar er kosið í stjórn og félagsgjald ákveðið. Nánar í samþykktum félagsins.
Þú getur sagt þig úr félaginu hvenær sem er með pósti á spilafelagvestfjarda@gmail.com.
Samþykktar á stofnfundi 12. september 2026. Smelltu á grein til að lesa hana.
Félagið heitir Spilafélag Vestfjarða. Heimili þess og varnarþing er í Ísafjarðarbæ.
Tilgangur félagsins er að efla áhuga á borðspilum, safnspilum og skyldum spilum meðal íbúa á Vestfjörðum, á öllum aldri, og að skapa reglulegan og opinn vettvang fyrir spilamennsku, félagsstarf og samveru í fjórðungnum.
Félagið er almenn félagasamtök sem starfa að ófjárhagslegum tilgangi. Félagið stundar ekki atvinnurekstur.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:
Öllum er heimilt að ganga í félagið sem vilja leggja tilgangi þess lið, án tillits til búsetu, aldurs eða reynslu. Aðild að félaginu er frjáls og engum er skylt að vera félagsmaður til að sækja viðburði félagsins, sem eru öllum opnir.
Umsókn um aðild er beint til stjórnar og telst félagsmaður skráður þegar félagsgjald hefur verið greitt. Stjórn heldur félagatal.
Félagsmaður getur sagt sig úr félaginu hvenær sem er með tilkynningu til stjórnar. Gangi félagsmaður úr félaginu á hann ekki tilkall til eigna þess.
Starfstímabil og reikningsár félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 30. apríl ár hvert og skal boða til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti, með tölvupósti til skráðra félagsmanna og auglýsingu á vef eða samfélagsmiðlum félagsins. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Stjórn félagsins skal skipuð að minnsta kosti þremur félagsmönnum, formanni og meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Heimilt er að kjósa allt að tvo varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum og skal meðal annars velja gjaldkera og ritara úr sínum röðum.
Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til stjórnarfunda og skal halda fundargerð um þá. Stjórnarfundur er ályktunarhæfur þegar meirihluti stjórnar situr fund.
Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar. Stjórn er heimilt að veita einum stjórnarmanni prókúru fyrir félagið.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt tvisvar á ári. Stjórn er heimilt að ákveða lægra eða ekkert félagsgjald fyrir félagsmenn yngri en 18 ára.
Auk félagsgjalda er félaginu heimilt að fjármagna starfsemi sína með styrkjum, frjálsum framlögum og þátttökugjöldum vegna einstakra viðburða.
Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal eingöngu varið í samræmi við tilgang félagsins skv. 2. gr. Félagsmenn njóta ekki fjárhagslegs ávinnings af starfsemi félagsins og óheimilt er að greiða þeim arð eða annað fé úr sjóðum félagsins.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með einföldum meirihluta atkvæða. Renna eignir félagsins þá til félagasamtaka eða góðgerðarmála með sambærilegan tilgang, sem ákveðin verða á slitafundi. Eignum félagsins skal aldrei ráðstafað til félagsmanna.
Samþykktum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi eða löglega boðuðum félagsfundi, enda hafi tillögu að breytingum verið getið í fundarboði. Til samþykkis breytinga þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Stjórn boðar til félagsfundar þegar hún telur ástæðu til, og er henni skylt að gera það krefjist minnst fimmtungur félagsmanna þess skriflega og tilgreini fundarefni. Boða skal til félagsfundar með minnst viku fyrirvara.
Félagið byggir á sjálfboðavinnu, félagsgjöldum og þeim sem trúa á verkefnið með okkur.
Félagið er rétt að byrja og verður það sem félagarnir gera úr því.